r/Iceland 18h ago

Segist ekki hafa rætt við Jetten

Thumbnail
mbl.is
32 Upvotes

Þessi frétt og fleiri finnst mér ganga ansi langt í að leggja Þorgerði Katrínu orð í munn. Eftir því sem ég fæ best séð sagði Þorgerður Katrín aldrei að hún hefði átt neitt samtal við Rob Jetten eða fulltrúa hans.

Í upphaflegu ummælunum sem vitnað var til (sem sjást hér https://www.visir.is/g/20262907377d/-kemur-ekki-a-ovart-ad-thetta-komi-fram-i-morgunbladinu-) talar Þorgerður um að hún hafi átt samtöl við „Hollendinga og kollega sína“ sem væru ekki í samræmi við afstöðu Jettens fyrir hollenska þinginu.

Orðalag fréttamanns virðist fylla ansi mikið í eyðurnar, því hann talar um "samtöl þeirra á milli" og gefur þannig í skyn bein samskipti milli Þorgerðar og Jettens þrátt fyrir að það komi ekki fram í meðfylgjandi beinni tilvitnun í Þorgerði.

Viðbót: Vísir hefur birt leiðréttingu um upprunalegu fréttina. https://www.visir.is/g/20262912299d/leid-retting-frettar-thad-sem-thor-gerdur-sagdi-i-raun


r/Iceland 6h ago

ESB, eða ekki?

11 Upvotes

Það er eitt sem ég skil ekki í allri þessarri umræðu um "áframhaldandi viðræður" eða ekki:

Þau sem eru á móti ESB, af hverju vilja þau samt ekki segja já í atkvæðagreiðslunni og sjá hvað það raunverulega myndi þýða fyrir okkur?

Þótt það væri ekki nema bara til þess að hafa eitthvað raunverulegt á bakvið alla umræðu gegn aðild seinna meir:

"Við sáum hvað við hefðum fengið og það var fucking hörmung"

Í staðinn fyrir að án þess að sjá samning:

"Eitthvað sem ég held, en get ekki vitað með fullri vissu: þetta yrði líklegast hörmun". Eða: "Einhver annar sagði mér að það yrði hörmung".

Væri ekki best fyrir alla að fá að sjá hvað þetta þýddi rqunverulega fyrir okkur, hvort við myndum fá undanþágurnar sem við viljum, eða ekki?

Ef ekki, þá segjum við ei faldlega bara nei þegar kemur að spurningunni um aðild. Við allavega hefðum staðreyndir á bakvið alla umræðu ef við fengjum að sjá samninginn sem okkur væri boðið.

Sjálfur er ég rosalega óviss um hvort þetta væri sniðugt eða ekki, aðildin þ.e.a.s. ég á samt engan fisk, býli, fyrirtæki né fjármuni.

En ég get ekki myndað mér málefnalega skoðun á því hvað það raunverulega þýðir ef Ísland gengur í ESB. Ég hef ekkert í höndunum nema bara "ég held", "kannski" og "örugglega".

Svona óvissa lætur mann ekki getað sagt mikið, í raun og veru.


r/Iceland 13h ago

Gudfadir Rokksins Slogan?

9 Upvotes

Hello! My family recently visited Iceland for our first time. We loved every moment.

While in the Reykjavik area, we enjoyed listening to a radio station listed as X-ID Gudfadir Rokksins. After many songs, the radio station played a short pre-recorded slogan of sorts. Phonetically, a crude English spelling of the slogan is "Neo Zhur Zhur".

My family is very curious about what this means and I have not been able to find anything through research.

Is anyone familiar with this and willing to share an English translation?


r/Iceland 5h ago

Ég er nýr á Seltjarnarnesi og byrjaði að hlaupa í sumar. Mig langar að halda áfram í vetur. Eru hlaupastígarnir yfirleitt mokaðir og hálkuvarðir, eða eru þeir oft of hálir til að hlaupa á?

2 Upvotes

r/Iceland 8h ago

Er einhver sem veit hvar er hægt að laga gömul walkman tæki?

2 Upvotes

Titillinn segir sig nokkuð sjálfur. Er með gamlan walkman sports frá mömmu minni sem virkar að ákveðnu leiti en það þarf alveg að finna fullkomna hljóðstillinngu til að það heyrist í báðum eyrum.

Svo ef einhver veit um stað eða hefur einhver ráð væri það mjög vel þegið


r/Iceland 47m ago

Favorite Þeytingur combination?

Upvotes

Hi! I love getting a Þeytingur after a swim, or right before heading home. I wanted to see what everyone's go-to combination is

What's your go-to topping combo? Mine's the new-style cream, peanut butter, oreo, and biscoff