r/Iceland 7h ago

Segist ekki hafa rætt við Jetten

Thumbnail
mbl.is
25 Upvotes

Þessi frétt og fleiri finnst mér ganga ansi langt í að leggja Þorgerði Katrínu orð í munn. Eftir því sem ég fæ best séð sagði Þorgerður Katrín aldrei að hún hefði átt neitt samtal við Rob Jetten eða fulltrúa hans.

Í upphaflegu ummælunum sem vitnað var til (sem sjást hér https://www.visir.is/g/20262907377d/-kemur-ekki-a-ovart-ad-thetta-komi-fram-i-morgunbladinu-) talar Þorgerður um að hún hafi átt samtöl við „Hollendinga og kollega sína“ sem væru ekki í samræmi við afstöðu Jettens fyrir hollenska þinginu.

Orðalag fréttamanns virðist fylla ansi mikið í eyðurnar, því hann talar um "samtöl þeirra á milli" og gefur þannig í skyn bein samskipti milli Þorgerðar og Jettens þrátt fyrir að það komi ekki fram í meðfylgjandi beinni tilvitnun í Þorgerði.

Viðbót: Vísir hefur birt leiðréttingu um upprunalegu fréttina. https://www.visir.is/g/20262912299d/leid-retting-frettar-thad-sem-thor-gerdur-sagdi-i-raun


r/Iceland 2h ago

Gudfadir Rokksins Slogan?

5 Upvotes

Hello! My family recently visited Iceland for our first time. We loved every moment.

While in the Reykjavik area, we enjoyed listening to a radio station listed as X-ID Gudfadir Rokksins. After many songs, the radio station played a short pre-recorded slogan of sorts. Phonetically, a crude English spelling of the slogan is "Neo Zhur Zhur".

My family is very curious about what this means and I have not been able to find anything through research.

Is anyone familiar with this and willing to share an English translation?


r/Iceland 1d ago

Hello i'm french and i'm sorry about what happened

124 Upvotes

Hello, today I saw a news about a French who destroyed some Icelandic lands. The guy responsible for that proudly filmed it. When I saw the news, I got both angry and embarrassed. It's a shame that he got fined with only 3000€. I'm deeply sorry for what he did.

edit: i had to delete the link of article due to the website paywall, sorry for the inconvenience.

The news title from paris match :

« Je n’ai jamais rien vu de tel » : en Islande, un touriste français saccage un site naturel au volant de son 4x4


r/Iceland 1d ago

Samfélagsleg ábyrgð eða PR stunt?

Thumbnail
gallery
72 Upvotes

Í morgun blasti við mér fréttin "Samherji efnir til stórátaks gegn fíknivanda“. Það vildi svo til að fyrir tveimur vikum var ég nefnilega að skrifa um svokallaðar PR stofur og hvernig þær beita svokallaðri krísustjórnun. Svo ég var aðeins í mér í þessum málum

Svona krísustjórnun beita almannatengslastofur eins og Pipar oft. Fyrirtæki, fjármagnseigendur eða stórútgerðir kaupa þjónustu PR stofa til að kynna samstarf við hjálparsamtök eða stofna nýja sjóði, eins og td þennan sjóð, sem ætlar að leggja fram 100 milljónir króna á næstu fimm árum í úrræði gegn fíknivanda eða styrki til íþrótta. PR stofan hannar skilaboðin og sendir tilkynninguna á fjölmiðla. Þar sem fréttastofur eru oft undirmannaðar, vanfjármagnaðar og hafa lítinn tíma, taka þær tilkynningunni oft eins og hún leggur sig og birta hana með nánast óbreytta. Fyrirsagnirnar verða nákvæmlega eins og PR stofan vildi að þær yrðu. Yfirskriftirnar eru gjarnan á þessa leið "Setja nýjan staðal í samfélagslegri ábyrgð“, og fyrirsagnir Moggans töluðu sínu máli í morgun "Samherji efnir til stórátaks gegn fíknivanda“.
Þannig forðast menn liðna atburði, "horfa til framtíðar“ og almenningur fer hægt og rólega að gleyma því sem áður var. Hvort sem það er Namibíumálið, eða þegar stórútgerðin er að hola lýðræðið okkar að innan með því að eignast Ísland í gegnum gífurlegar fjárfestingar í minni sjávarútvegsfyrirtækjum og óskyldum atvinnurekstri þar sem samþjöppunin er orðin gífurleg, eða inn í miðri ESB umræðu. Þegar stórir hagsmunir eru í húfi er besta vörnin fólgin í því að byggja upp samfélagslega inneign.

En af hverju skiptir þetta máli hér? Af hverju er ég að skrifa þetta hér? Tengingin í þessu tiltekna tilviki er mjög skýr. Almannatengslastofan Pipar\TBWA hýsir vef átakssjóðsins Samheldni og vefsíðuna Áfram Ísland, og æðsta stjórn nýja sjóðsins er þéttskipuð fulltrúum Samherja, Pipars og atvinnulífsins "Stjórn samtakanna skipa Anna María Kristinsdóttir, mannauðsstjóri Samherja, Einar Logi Vignisson, framkvæmdastjóri RÚV sölu, Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, Sunneva Ósk Guðmundsdóttir, framleiðslustjóri ÚA, og Valgeir Magnússon, stjórnarformaður Pipars\TBWA, sem verður jafnframt stjórnarformaður samtakanna. Varamaður er Marta María Winkel Jónasdóttir. Þá verður Söfnunarráð Samheldni eftirfarandi: Baldvin Þorsteinsson, Einar Logi Vignisson, Svanhildur Þórsteinsdóttir, Patricia Bono, Björgvin Páll Gústavsson, Helen Breiðfjörð, Valgeir Magnússon.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem svona gerist, og ekki það síðasta.

Öll viljum við berjast gegn fíknisjúkdómum og því ber alltaf að fagna þegar einhverjir vilja leggja hönd á plóg til að styrkja þá mikilvægu starfsemi sem sinnir fólki með fíknivanda. Átakssjóðurinn Samheldni, sem stofnaður var af Samherja, lyktar hins vegar af almannatengslum og PR. Mér finnst afar miður að viðkvæmir hópar séu nýttir í svona PR herferðir, en það sýnir að fjármagnið og stórútgerðin svífast einskis. Fíknivandinn verður einfaldlega ekki leystur með svona almannatengslaátökum. Hann er leystur með raunverulegri skaðaminnkun og mannúðlegri nálgun, eins og afglæpavæðingu.

Og svona til að setja fram skýran varnagla ef stórútgerðin, Pipar eða talsmenn þeirra koma hér í commentin eða fréttinar til að beina athyglinni frá vandanum yfir á notandan sem þetta skrifar og spyrja "Skammastu þín ekki fyrir að vera á móti hjálp við fólk með fíknivanda?" Það eru ekki þeir sem benda á tengslin á milli stórútgerðarinnar og PR stofa sem eiga að skammast sín. Það eru þeir sem telja sig geta þvegið af sér erfið mál með því að lauma stórum PR herferðum inn í velferðarmál í stað þess að greiða eðlilega skatta og auðlindagjöld til að ríkið geti fjármagnað þessa heilbrigðisþjónustu af fullum þunga. Fólk með fíknisjúkdóma og fjölskyldur þeirra eiga allt gott skilið. Það sem ég er að gagnrýna eru almannatengslastofurnar og stórfyrirtækin sem nota þjáningu viðkvæmra hópa sem skjöld gegn gagnrýni og til að kaupa sér samfélagslega inneign.

Sjá skjáskotin af hver hýsir báðar síðunar hér að ofan


r/Iceland 1d ago

Gervidrulla í Arion banka auglýsingu

36 Upvotes

Er einhver annar búinn að taka eftir að þessar nýju auglýsingar hjá Arian banka að það er svo augljóslega gervigreind búin að gera “bakgrunninna” í henni


r/Iceland 1d ago

Sviptir flugréttindum tímabundið vegna lágflugs yfir Vestmannaeyjum - RÚV.is

Thumbnail
ruv.is
27 Upvotes

r/Iceland 1d ago

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Thumbnail
mannlif.is
20 Upvotes

Ætli stjórnvöld hafi vitað um hvað þetta snérist? Var þetta kannski bara "endilega komið á fund, það verður matur" og svo kom í ljós hvað fundurinn snérist um?


r/Iceland 1d ago

Tjón Tjónsson auglýsing VÍS

24 Upvotes

Er eitthvað af þessum atvikum atburðir sem tryggingafélög myndu bæta? Hvaða tryggingu þyrfti ég að kaupa til að fá bættan eigin síma sem ég missi í klósettið heima hjá mér?


r/Iceland 1d ago

Skúli fagnar með „sann­leikann að vopni“

Thumbnail
visir.is
20 Upvotes

„Almar verjandi Skúla útskýrir fyrir blaðamanni Vísis að niðurstaða héraðsdóms í morgun um frávísun hafi grundvallast á því að bannað sé að refsa mönnum eða láta þá gangast undir tvöfalda málsmeðferð út af sama atvikinu. Þannig hafi landlæknir á sínum tíma tekið ákvörðun um að svipta Skúla Tómas lækningaleyfi og því sé ekki hægt að refsa honum aftur fyrir sama brot.“

Er þá bara verið að viðurkenna að hann átti sök á dauðanum eða er þetta tæknilegt?


r/Iceland 1d ago

Lánshæfismat creditinfo pælingar

7 Upvotes

Hef verið að velta einu fyrir mér í nokkurn tíma núna varðandi lánshæfismat creditinfo. Þar eru flokkar frá A1 upp í E3 og svo vanskilaskrá.

Af hverju eru þau samt með alla þessa flokka þegar það eru engar líkur á að fá að fá lán frá C1 og uppúr? Einu flokkarnir sem geta fengið lán eru A1 - B3… held að ekki einusinni grófustu smálánafyrirtækin taki við þér í C1.

Samt eru þarna 9 stig frá C1 sem geta ekki fengið lán. Væri ekki einfaldara að stoppa þetta bara eftir C3?


r/Iceland 18h ago

🌒🌔🌓 The Dorothy Project - Filming the total eclipse and Icelandic landscape with high altitude balloon - Looking for local insight and volunteer Icelanders 🌗🌖🌘

0 Upvotes

Hallo everyone,

It's a long shot, but I am trying my luck here.

I am writing on behalf of the The Dorothy Project team. We are a non-profit organization from Canada that make 360° immersive content to araise ecological awareness. In 2024 we sent a weather balloon in the Stratosphere to film the total solar eclipse which resulted in an immersive 360° film and a documentary. We are coming to Iceland from August 3rd to the 20th to reiterate for the August 12th total solar eclipse.

We have been invited by members of a festival that takes place on the Snaefellsnes peninsula from August 11th to the 15th and that took a liking to our project.

We also have the support of the Icelandic Space Agency for administrative purposes and permits.

The confirmation of the festival's involvement came late so we are very tight on schedule for a few things. As we are a non-profit organization they are helping us cover basic expedition costs through small sponsorship.

Time is of the essence and we still need help with a few important things; the main one being transportation for our crew and our gear. We are looking for a private vehicle rental. We need a 5 passenger 4x4 Froad authorized vehicle with a tow bar. We've messaged over 15 rental companies but finding one with a tow bar seems to be an impossible mission so far.

If you own a vehicle and would like to join us for the adventure, all the better.

We value local collaboration, so we are also looking to make contact with Icelanders that have good knowledge of the terrain, that share our values and interests; that would be interested in joining our team on site for the launch and the recovery mission of our module.

We will be accommodated by the festival for most of the trip, but are therefore also looking for accommodation in Reykjavik for the first and the last 3 days, for preparation and wrap up purposes.

If you have any insights and/or recommendations or if you want to volunteer or help us with the vehicle or accommodation issues please write a comment on this post or send a DM.

Here are the links to our website ( https://www.thedorothyproject.ca/ and our Instagram (https://www.instagram.com/the_dorothy_project/) if you want some visuals and feel like learning more about us and what we do.

Thank you so much in advance for taking the time to read and for your help 🚀👩🏿‍🚀🚀


r/Iceland 1d ago

Út af því að þú hatar það sjálfsmyndin

32 Upvotes

Þegar ég var krakki lenti maður stundum í þannig týpum, þið vitið, manneskjan sem var alltaf á móti öllu sem maður sagði, bara af því að maður var með því. En í dag finnst mér þetta komið á eitthvað allt annað level með samfélagsmiðlunum. Manni finnst eins og stór hópur af fólki í dag byggi sjálfsmynd sína nánast eingöngu á andstöðu og mótþróa og anægjan þeirra virðist ekki einu sinni liggja í málefninu sjálfu, heldur bara í viðbrögðunum sem þau fá,
maður er að sjá þetta markvisst i commentakerfunum td ef hópur A elskar eitthvað, þá mun hópur B hata það og dásama andstæðuna, ekki af því að þeim þyki hún endilega góð, heldur vegna þess að það pirrar hóp A.

Það er eins og sumt fólk sé með þannig persónueinkenni að verða að stunda mótþróa.
Það er eins og það sé eitthver innri þörf til að vera alltaf á móti straumnum eða mótmæla ríkjandi skoðunum í herberginu, eða samfélagsmiðlum eða samfélaginu, alveg óháð staðreyndum málsins. Og algrímið á samfelagsmiðlum virðist bókstaflega vera hannað til að verðlauna og kynda undir þessu. Fattið þið hvað ég er að meina, eða er ég bara að ofhugsa þetta? Hafa aðrir tekið eftir þessari breytingu? Kannski hefur alltaf verið mikið af þessum týpum, en núna er sér maður þær bara miklu meira út af samfélagsmiðlunum og commentakerfunum.

p.s eg veit alveg að þetta er kjarninn í því sem einkennir internet tröllinn, enda eru þau bokstaflega oft bara drifin áfram af hreinum sadisma og fá kick út úr því að koma fólki í uppnám og valda vanliðan og þau elska að að finna þorfina fyrir stjórnun og vald
en mér finnst mótþróafólkið ekki endilega alltaf vera þar, kannski heldur sumt af þessu fólki örugglega í alvörunni að það sé að "hugsa sjalfstætt"

Btw ég er ekki að ranta af því að fólk sé ósammála mér. Ég er að tala um fólk sem er bara í mótþróa og er á móti hlutunum bara af því bara, jafnvel þótt það sem sagt er sé hrein staðreynd

Ok buinn að deila með ykkur mánudagshugleiðingum Numix þetta kvöldið, algjörlega óáhugaverð pæling


r/Iceland 1d ago

Elko Snjallgreiðslur experiences?

0 Upvotes

Anyone bought something from Elko of significant value using Elko smart payments? I am aware at the end of the payment plan you’re paying interest on top of the item cost but any problems/issues to be aware of?


r/Iceland 2d ago

Hobbíaðstaða fyrir járnsmíði?

13 Upvotes

Er einhverstaðar mögulegt að komast í aðstöðu fyrir einfalda járnsmíði. td súluborvél, beygjuvél og þannig?


r/Iceland 2d ago

Ráð fyrir leigusala sem er að leigja í fyrsta skipti

8 Upvotes

Ég er að leigja út íbúðina mína í fyrsta skipti á langtímaleigu og var að spá hvort þið hafið eitthver góð ráð fyrir mig.

T.d. að velja góða umsækjendur og hvernig er best að samskipti séu þar á milli.


r/Iceland 3d ago

Er það ills viti þegar pylsupakki er ekki 100% þéttur?

14 Upvotes

Þeas, það er hægt að hreyfa pylsurnar inni í plastinu pínulítið. Vísar það á að loft hafi komist inn og þær séu skemmdar?


r/Iceland 3d ago

Sundlaugar tékk listi fyrir áhugasama

Thumbnail
canva.link
13 Upvotes

Ég bjó til þennan lista eftir að lesa bókin ,,Sund" eftir þau Katrínu Snorradóttur og Valdimar Tr. Hafstein. En það sem mér fannst vanta í bókina var tékk listi yfir allar sundlaugarnar hér á landi.

Þetta er nú bara mjög basic hvernig ég setti hann upp en ef einhver getur gert flottari lista mun ég víkja mínum lista.


r/Iceland 4d ago

Sjö­tugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara

Thumbnail
visir.is
33 Upvotes

r/Iceland 4d ago

Reglur um gjafaegg á íslandi

22 Upvotes

Hæhæ. Ég er glasabarn þar sem eggið kom frá annarri konu sem bað um að vera haldin nafnlaus jafnvel eftir að ég varð 18 þannig að ég fæ aldrei að vita hver hún er. Það truflar mig ekki en ég er pínu stressuð um hvort ég þurfi að taka DNA próf með kærasta mínum til að tryggja það að við séum ekki frændsystkini eða eitthvað álíka. Hann vill meina að það sé ólöglegt að fara í gegnum ferlið með eggi íslenskri konu á meðan mig minnir að móðir mín hafi sagt að eggjagjafin sé líklega íslensk (veit ekkert hvernig hún myndi vita það samt).

Spurningin er: er möguleiki að eggjagjafin sé íslensk kona og þurfum við að taka DNA próf?


r/Iceland 4d ago

Hafnar orðum Þorgerðar

Thumbnail
mbl.is
17 Upvotes

Hollensk stjórnvöld hafna því að Rob Jetten forsætisráðherra eða fulltrúar hans hafi sagt íslenskum stjórnvöldum að Ísland gæti fengið undanþágur, sérlausnir eða varanlega undanþágu frá sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins.


r/Iceland 4d ago

Ísland meðal 66 ríkja á ráðstefnu um „öfgaöfl á vinstri vængnum“

Thumbnail
mannlif.is
34 Upvotes

Veit einhver hver mætti fyrir hönd islands?


r/Iceland 4d ago

Tekist á um milljarðabrú á bæjarráðsfundi! Erum við of heimsk til að reka samfélag?

Thumbnail
dv.is
22 Upvotes

r/Iceland 5d ago

Mögulegt hot-take: Ak-inn á Akureyri er með bestu gamaldags sjoppuborgarana á Íslandi

34 Upvotes

r/Iceland 5d ago

U.S. Hosts Conference on 'Far-Left Terrorism' With Representatives From Over 65 Countries: What to Know

Thumbnail
time.com
15 Upvotes

Veit einhver hvaða (hvort?) fulltrúar mættu frá Íslandi og hvað þeir hafa verið að bardúsa á þessari ráðstefnu? Ég sé ekkert um þetta á íslenskum fjölmiðlum að paywalled grein Heimildarinnar undanskilinni. Það er heldur ekkert á Alþingisvefnum eða á heimasíðu Utanríkisráðuneytisins.


r/Iceland 5d ago

skýrt og bíræfið græðgi

29 Upvotes

https://myigloo.is/listings/24541

"Athugið að ekki er hægt að hafa lögheimili í eigninni þar sem íbúðin er skráð sem skrifstofa og því ekki hægt að sækja um húsaleigubætur." -Guðrún Lilja Tryggvadóttir hjá remax

er engin viðurlög?

edit: bíræfin 🥹