r/Iceland • u/CoconutB1rd • 3h ago
ESB, eða ekki?
Það er eitt sem ég skil ekki í allri þessarri umræðu um "áframhaldandi viðræður" eða ekki:
Þau sem eru á móti ESB, af hverju vilja þau samt ekki segja já í atkvæðagreiðslunni og sjá hvað það raunverulega myndi þýða fyrir okkur?
Þótt það væri ekki nema bara til þess að hafa eitthvað raunverulegt á bakvið alla umræðu gegn aðild seinna meir:
"Við sáum hvað við hefðum fengið og það var fucking hörmung"
Í staðinn fyrir að án þess að sjá samning:
"Eitthvað sem ég held, en get ekki vitað með fullri vissu: þetta yrði líklegast hörmun". Eða: "Einhver annar sagði mér að það yrði hörmung".
Væri ekki best fyrir alla að fá að sjá hvað þetta þýddi rqunverulega fyrir okkur, hvort við myndum fá undanþágurnar sem við viljum, eða ekki?
Ef ekki, þá segjum við ei faldlega bara nei þegar kemur að spurningunni um aðild. Við allavega hefðum staðreyndir á bakvið alla umræðu ef við fengjum að sjá samninginn sem okkur væri boðið.
Sjálfur er ég rosalega óviss um hvort þetta væri sniðugt eða ekki, aðildin þ.e.a.s. ég á samt engan fisk, býli, fyrirtæki né fjármuni.
En ég get ekki myndað mér málefnalega skoðun á því hvað það raunverulega þýðir ef Ísland gengur í ESB. Ég hef ekkert í höndunum nema bara "ég held", "kannski" og "örugglega".
Svona óvissa lætur mann ekki getað sagt mikið, í raun og veru.