r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • 18h ago
Boðar 100% innflutningstoll á samheitalyf - RÚV.is
Alvotech = short.
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • 18h ago
Alvotech = short.
r/Borgartunsbrask • u/11MHz • 1d ago
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • 2d ago
"Franska þingið lýsti andstöðu sinni við að Ísland fengi undanþágur frá fiskveiðistefnu ESB árið 2010 þegar aðildarviðræður stóðu yfir.
Spurður hvort afstaða franskra stjórnvalda hefði breyst sagði Barrot að margt hefði breyst síðan í síðustu viðræðum og að nýjar viðræður myndu taka mið af gjörbreyttu samhengi í alþjóðastjórnmálum."
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • 8d ago
"Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir að Íslendingar gætu tekið upp evru í fyrsta lagi eftir fimm ár. Þetta kemur fram í aðsendri grein þingmannsins í Morgunblaðinu í dag. Pawel spyr hvort ástæða sé til að hafna varanlegri lausn á vaxtavanda heimilanna bara af því hún er ekki skyndilausn: "
„„Það er langur tími,“ munu einhverjir segja og kannski er það rétt. Tíminn gæti líka orðið lengri ef viðræður eða samþykktarferli dragast á langinn, eða ef okkur gengur illa að ná Maastricht-viðmiðunum. En hvað ef það tekur tíu ár? Er það ástæða til að hafna varanlegri lausn á vaxtavanda heimilanna, bara af því að hún er ekki skyndilausn?“
r/Borgartunsbrask • u/TipRelevant2695 • 14d ago
Var bara að spá - getur það verið að árið 2026 sé enn ekki hægt að tengja sig við íslensku kauphöllina í gegnum API þannig að brokerar (eða núna einstaklingar sem gera sín eigin kerfi með gervigreind) geti tengt sig beint inn og keypt og selt hlutabréf með þeim hætti?
r/Borgartunsbrask • u/Only-Risk6088 • 18d ago
https://strawpoll.com/e6Z2AEojJgN/results
Jæja, niðurstaðan er komin í loftið. Það verður áhugavert að sjá hversu nálægt þessari könnun niðurstaðan verður í ágúst.
Það var mikil óánægja með að hafa niðurstöðurnar faldar en þær eru ekkert leyndarmál.
EDIT: TLDR: Já í ágúst, formsatriði að halda þessar kosningar.
r/Borgartunsbrask • u/Starlight01 • 19d ago
Hvað segja braskarar, græði ég eitthvað á því að klára MPA nám ef ég er að íhuga að færa mig frá hinu opinbera yfir í einkageirann í framtíðinni?
Ég hef líka verið að gæla við að fara frekar í MBA nám, en það er mun dýrara (ég myndi þó fá slíkt nám að miklu niðurgreitt) og virðist líka mun tímafrekara og erfiðara.
Er MBA gráða að gefa fólki meira launalega og tækifærislega séð heldur en MPA? Eða er allt svona auka bara svipað fínt?
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • 21d ago
More money more problems? Einhverjir myndu segja að það væri jákvætt að það vantar ekki lausafé, en hversu oft munu þeir taka lán og hversu mikið skulda þeir núna?
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • 26d ago
En og aftur spyr ég, hvað hefur verð á flugmiðum að gera inn í verðbólgumælingu? Að fara til útlanda er ekki nauðsynjavara, þetta hefur ekkert að gera með vöruverð. Eða er Bónus að flytja inn mat með Icelandair? Það er næstum því eins og það sé verið að reyna að halda verðbólgumælingum háum
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • 27d ago
Þetta gladdi mig að sjá 🥰
r/Borgartunsbrask • u/Only-Risk6088 • 27d ago
r/Iceland leyfir ekki kannanir, en þessi verður opin í viku. Pósta henni bara á borgartunsbrask, niðurstöður birtast sjálfkrafa eftir viku. Forvitnilegt að sjá hvar fólk stendur, mér finnst skoðannakannair ekki endurspegla fólk í kringum mig.
Það er augljóst að ESB umræðan hefur áhrif á markaðinn og mun líklega hafa áhrif svo lengi sem umræðan er í gangi.
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • 29d ago
Það er mjög margt líkt með Noregi og Íslandi og það er ljóst að það sem Íslendingar ákveða að gera mun hafa áhrif á umræðuna í Noregi. Það er mikilvægt fyrir okkur að fylgjast með og mjög margir Norðmenn munu fylgjast grannt með því sem gerist hér. Til dæmis er fiskiðnaðurinn í Vestur-Noregi mjög áhugasamur um að sjá hvers konar samning Ísland gæti mögulega fengið á því sviði,“ segir Barth Eide.
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • 28d ago
Helga Arnardóttir
„Ég held að samfélagið hafi klikkað“ – Matvöruverð í hæstu hæðum á meðan matvörurisar hagnast
Matvara er 55% dýrari á Íslandi en ESB-ríkjum og verð á þeim hefur hækkað hraðar en í samanburðarlöndum síðustu ár. Hagnaður Haga og Festi, sem eiga Bónus og Krónuna, hefur meira en tvöfaldast frá árinu 2020. Matvörurisar kenna launahækkunum um hátt matarverð en forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur að samfélagið allt hafi brugðist. Lega landsins, sérstakur gjaldmiðill og tollavernd spili inn í, en ekki síður eigi öflug hagsmunagæsla matvörumarkaðarins sinn þátt í hækkunum. Þá megi löggjafinn líta í eigin barm, aðstæður hér á landi ýti undir fákeppni frekar en samkeppni. Frekar sé keppt í þjónustu en verði á matvörum."
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • Jun 20 '26
"Húsnæðisvextir á evrusvæðinu eru að jafnaði 3,1 prósent en eru 8,9 prósent á Íslandi.“
"Ástæða alls þessa er að erlend fyrirtæki vilja ekki taka þátt í krónuhagkerfi. Þau líta ekki við öðru en samkeppnishæfum gjaldmiðli, rétt eins og stórútgerðin á Íslandi, sem hefur fyrir löngu flúið krónuna sakir þess að hún er óhæf til útflutnings."
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • Jun 20 '26
Mjög góð grein.
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • Jun 19 '26
"Á síðustu dögum hefur verið reynt að telja okkur trú um að það sé í raun ódýrt að versla í matinn á Íslandi, að vaxtakjör á húsnæðislánum hérna séu ekki hræðileg heldur frábær og að ábyrg efnahagsstjórn sé ekkert annað en aðför að bönkum með allt of háa arðsemiskröfu. Umræðan minnir sífellt meira á þá sem átti sér stað fyrir ári þegar hagsmunahægrið hneppti niður að nafla, þyrlaði í hvítvíni og reyndi að gaslýsa þjóð frá því að leiðrétta veiðigjöld á stórútgerðina."
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • Jun 13 '26
Það er ekki skrýtið að Icelandair sé að fara fram á einhvers konar "launalækkun" því það var aldri innistæða fyrir launahækkunum. Ég held því miður að við munum sjá einhver fyrirtæki fara á hausinn á næstunni vegna launakostnaðar sem fyrirtækin ráða ekki við (vonandi ekki Icelandair). "Hvítu hetjurnar" í verkalýðsfélögunum hafa og eru að stuðla að því að lítil fyrirtæki fari á hausinn og kökunni verði skipt upp á en færri hendur. Í hvaða heimi er hægt að fara fram á launahækkanir þegar fyrirtæki hefur verið rekið með tapi síðan 2018? Greinilega á Íslandi. Ég mæli með því að allir prófi að reka fyrirtæki á Íslandi í svona ár með fólk á launaskrá og tjái sig svo um kjaramál <3 ást og friður
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • Jun 13 '26
"Tímasetningin er áhugaverð þar sem gengi Alvotech hefur hækkað um 29% síðastliðinn mánuð."
Lifeyrissjóðir sitja uppi með þetta scam en formaðurinn á fasteignirnar.
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • Jun 10 '26
Íslendingar greiða að meðaltali 55% meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins. Þetta segir í greiningu Samkeppniseftirlitsins sem var birt í svokölluðu umræðuskjali í dag.
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • Jun 09 '26
Nú berast fregnir af því að Þorsteinn Már Baldvinsson, stofnandi Samherja, ætli að borga úr eigin vast 25 milljónir króna fyrir rekstur á úthringiveri í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í ágúst. Þá verður hópur fólks við störf við úthringingar til kjósenda þar sem haldið verður uppi skefjalausum áróðri gegn því að kjósa JÁ en þess í stað dreift neikvæðum hræðsluáróðri til að reyna að koma í veg fyrir að þjóðin fái að ráða og fái svör við þeim kostum sem gætu verið í boði gagnvart Evrópusambandinu.
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • Jun 09 '26
Aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðum Íslands við ESB 2009-2013 metur samningsstöðuna að mörgu leyti betri núna. Hann segir að sérstaða Íslands bjóði upp á sérla
r/Borgartunsbrask • u/ButterscotchFancy912 • Jun 06 '26
Finnlandsforseti vill stækka Evrópusambandið allverulega og vill helst fjölga aðildarríkjum úr 27 í 40. Sambandið verði að „hugsa stórt“ og nefnir hann Ísland, Noreg og jafnvel Kanada í því samhengi.
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • Jun 05 '26
"Plís plís plís ekki fara"...
"Ef þið farið hver á þá að fara í verkfall á eins og hálfs árs fresti og heimta hærri laun 🥹????"
r/Borgartunsbrask • u/castor_pollox • Jun 02 '26
r/Borgartunsbrask • u/afruglari • Jun 01 '26
Hæ, getur einhver eli5 afhverju ég ætti að fjárfesta í ríkisskuldabréfum þegar ávöxtun á sparnaðarreikninum virðist vera hærri og stöðugari?